Spjallmenni sem passa vörumerkinu.
Persóna
Þetta er Edda, okkar eigin spjallþjónustufulltrúi. Hún býr neðst í hægra horninu á þessari síðu og svarar spurningum um Vefapp á íslensku, ensku eða því tungumáli sem þú kýst að skrifa á. Smelltu á kúluna til að prófa.
Inngangur
Við smíðum sérsniðin spjallmenni sem búa inni í þinni eigin síðu, ekki utanaðkomandi viðbót. Persónan, röddin og varnaglar eru valdir samhliða hönnuninni og spjallmennið flettir upp í þínum eigin gögnum (vörulista, þekkingargrunni eða skjölum) áður en það svarar. Notandinn fær svar með tilvísunum, þú heldur stjórn á tóni og umfangi.
Hvernig það virkar
Greining
Við skoðum gögnin sem spjallmennið á að þekkja, hvaða spurningum það á að svara, og hvar mörkin eiga að vera. Niðurstaðan er stutt umfangsskjal sem allt liðið samþykkir áður en þróun hefst.
Persóna
Nafn, rödd, tónn og synjunarreglur. Evín á amka.is er vínráðgjafi, ekki sjálfvirkt sölukerfi, og segir því kurteislega nei við spurningum sem hún á ekki að svara. er skrifað eins og leiðbeiningar fyrir starfsmann, ekki sem regex.
Svarar út frá þínum gögnum
Spjallmennið flettir upp í þínum eigin gögnum, vörulista, PDF-skjölum, hjálparsíðum, hverju sem þú vilt að það kunni, áður en það svarar. Þegar einhver spyr finnur það fyrst réttu upplýsingarnar í grunninum þínum og vitnar svo beint í upprunann, líkt og starfsmaður sem flettir í handbókinni áður en hann svarar. Engar tilbúnar staðreyndir, bara raunverulegt efni úr þínum eigin gögnum. Aðferðin heitir (Retrieval-Augmented Generation) á tæknimáli.
Samþætting
Spjallmennið býr inni í síðunni þinni, sömu litir, sama letur, sami tónn. Streymandi svör, varaleið yfir í tölvupóst þegar er ekki viss, mælaborð fyrir samtöl og prompt-stillingar fyrir starfsfólkið svo þú getur fínstillt án þess að deploya.
Hvað fylgir
- 01Sérsniðin persóna með nafni, rödd og synjunarreglum
- 02Uppfletting í þínum eigin gögnum ( eða annar þekkingargrunnur)
- 03Tilvísanir í upprunalegar línur (engar rangtúlkanir)
- 04Streymandi svör, notandinn sér orðin koma jafnóðum
- 05Varaleið í tölvupóst þegar spjallmennið er ekki visst
- 06Þemaaðlagað viðmót sem fylgir ljóst/dökkt val notandans
- 07Stillanlegt system prompt, þú breytir tóni án nýrrar útgáfu
Dæmi
Evín, vínráðgjafi
Sérsmíðað spjallmenni grundvallað á öllum vörulistanum hjá Amka, yfir þúsund vín, framleiðendur, svæði og matarpörun. Notandinn spyr „hvaða rauðvín passar með lambi“ og Evín svarar með beinum tilvísunum í vínin í listanum.
Skoða dæmisögu →Pörun umsækjenda og starfa
tengt beint við starfslistann og umsækjendaprófíla á Vegferð. Niðurstaðan er ekki spjall heldur ráðlegging, kerfið parar saman umsækjendur og störf á grundvelli færni og óska, með skýringu fyrir hverja pörun.
Skoða dæmisögu →Stakkur
- Claude (Anthropic)
- RAG
- Embeddings
- Vector search
- Supabase Postgres
- Streymandi svör
- Server-rendered viðmót
Næst
Áttu vörumerki sem á skilið sína eigin rödd?
Sækja tilboð →