Hoppa í aðalefniHoppa á efni
Vefapp · Um okkurReykjavík · Fjarvinna

Við umbreytum áskorunum
í stafrænan árangur.

Um okkur

Vefapp er hugbúnaðardeild Datatech ehf. í Reykjavík. Datatech hefur verið starfandi frá apríl 2012 og markmið okkar er einfalt: að hjálpa þér að ná þínum markmiðum með nútímalegum, sérsniðnum lausnum.

Við greinum flóknar áskoranir og umbreytum þeim í stafrænar lausnir sem skila árangri. Með því að sameina rekstrarskilning og tækniþekkingu byggjum við lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir frumkvöðla, lítil teymi og rótgróin fyrirtæki sem vilja gera hlutina faglega.

Við leggjum áherslu á stílhreina hönnun, skilvirkni, skalanleika, gagnaöryggi og síðast en ekki síst sanngjarna verðlagningu.

Við gerum raunhæfar og gagnsæjar tíma- og kostnaðaráætlanir og bjóðum föst verð þegar verkefni eru vel skilgreind og án stórra óvissuþátta. Við fylgjum öllum verkefnum vel eftir og bjóðum upp á heimsklassa vefhýsingu, bæði hvað varðar tæknilega umgjörð og öryggi.

Við byggjum á Next.js og Vercel, sama tæknistakk og fyrirtæki á borð við Nike, LG, The Washington Post, Virgin og Target treysta á.

Þjónusta

01

Stefnumótun og ráðgjöf

Með áratuga reynslu hjálpum við fyrirtækjum að greina áskoranir í rekstri og finna réttar leiðir til framfara. Við aðstoðum við forgangsröðun og val á tækni og lausnum sem henta þínum verkefnum.

02

Heildstæð vöruþróun

Við leiðum ferlið frá fyrstu greiningu að fullbúinni vöru. Með samþættingu notendaupplifunar og viðskiptamarkmiða búum við til lausnir sem fólk raunverulega notar.

03

Þjónusta og eftirfylgni

Við tryggjum rekstraröryggi og stöðuga framþróun með fyrirbyggjandi þjónustu sem felur í sér mánaðarlegar öryggisuppfærslur svo kerfin þín séu ávallt örugg, uppfærð og tiltæk.

Lausnir

01

Sérhönnuð ofurhraðvirk vefsíða

Við byggjum á og hýsum vefsíðuna eða appið þitt hjá . Ef þörf er á gagnagrunni notum við , sami tæknistakkur og fyrirtæki á borð við Nike, LG, The Washington Post, Virgin og Target nota fyrir sínar vefsíður.

Skoða veflausnir →
02

Leitarvélabestun (SEO)

Þegar einhver leitar á Google að því sem þú selur viltu helst birtast ofarlega. Það kostar ekkert að lenda í efstu sætunum með lífrænni leit, og flestir viðskiptavinir byrja einmitt þar: þeir treysta niðurstöðum sem virðast sjálfsprottnar fremur en auglýsingum og smella á síður sem hlaðast hratt og líta fagmannlega út. Við byggjum allt sem til þarf inn í kjarna síðunnar frá fyrsta degi, svo fyrirtækið þitt finnist þar sem fólkið er nú þegar að leita.

Skoða SEO-þjónustu →
03

Spjallmenni

Sérsmíðuð gervigreindarspjallmenni, með sín eigin persónueinkenni, rödd og nákvæma þekkingu á þínum vörum eða þjónustu. Evín-spjallmennið á amka.is er gott dæmi: vínráðgjafi sem þekkir öll vínin og hvaða matur passar með þeim. Byggður á og notar yfir .

Skoða spjallmenni →
04

Gervigreind

Við getum sérsmíðað gervigreindarvirkni inn í vefsíðuna þína, sérhönnuð fyrir þitt fyrirtæki og fer eftir þínum reglum, hönnuð til að passa við vörumerkið þitt í stað þess að líta út eins og utanaðkomandi keypt viðbót eins og algengt er í . Frá snjallri leit sem skilur samhengi til sjálfvirkrar flokkunar og útdráttar úr skjölum og gagnagrunnum, keyrir ýmist á með eða Agentic yfir , eða ónettengd á Nvidia-vélbúnaði fyrir þá sem treysta ekki nettengdum gervigreindarþjónustum.

Skoða gervigreindarlausnir →

Greining

Viltu greina núverandi vefinn þinn?

Prófaðu skannann →

Hvað fylgir

  • Sérsmíðuð heimasíða eða vefforrit
  • Sérsniðið stjórnborð (bakendi)
  • Hýsing á Vercel
  • Mánaðarleg kóðarýni
  • 90+ stig í Google PageSpeed
  • Strúktúruð gögn (JSON-LD) fyrir leitarvélar
  • Tenging við Google Analytics
  • Heimsklassa öryggi
  • Föst verð þegar mögulegt
  • Tæknilegur stuðningur

Staðlar og traust

Vefur sem við afhendum þarf að standast tvo staðla, annan fyrir aðgengi, hinn fyrir öryggi gagna. Hvorugur er valfrjáls.

01

WCAG 2 AA aðgengi

Allar síður sem við smíðum standast , alþjóðlegan aðgengisstaðal W3C, nægileg litabirta, full lyklaborðsstýring, skjárlestrar­samhæfi og merkingar sem hjálpartæki skilja. Þetta er ekki bara fyrir notendur með skerðingar; það gerir vefinn læsanlegri í sólskini, í strætó og fyrir hvern þann sem hefur lítinn tíma. Evróputilskipun um aðgengi vöru og þjónustu (EAA, 2019/882) hefur verið í gildi frá 28. júní 2025 og gerir staðalinn að skyldu fyrir mörg neytendamiðuð kerfi.

02

Vercel · ISO/IEC 27001 vottun

Við hýsum öll verkefnin okkar á , sem er með ISO/IEC 27001 vottun fyrir upplýsingaöryggisstjórnkerfi (). Það þýðir að innviðirnir sem þjóna vefnum þínum fara í gegnum óháðar úttektir á öryggisstefnu, aðgangsstýringu, áhættumati og atvikastjórnun, staðallinn sem ríki, bankar og fjölmargar stofnanir krefjast af hýslum sínum.

Samstarf

Þegar verkefni krefst meira en tæknilegrar útfærslu vinnum við í samstarfi við Manhattan, markaðsráðgjafarstofu með áratuga reynslu af íslenskum vörumerkjum. Saman bjóðum við viðskiptavinum okkar heildarpakka þar sem stefna, markaðsstarf og tæknilegur grunnur fara saman í eina lausn.

01

Markaðsleg stefnumótun og áætlanagerð

Markaðs- og samkeppnisgreining, markhópamiðun, mótun staðfærslu og markaðsstefnu, annaðhvort frá grunni eða sem uppfærsla á núverandi stefnu. Áætlanagerð fylgir með: skipulagning aðgerða, samval markaðsráða og kostnaðaráætlun.

02

Stjórnun auglýsingaherferða

Skipulagning og stjórnun markaðssamskipta gagnvart markhópum í gegnum fjölmiðla, vef og samfélagsmiðla, frá mótun skilaboða og framleiðslu efnis til birtingaáætlunar og fjölmiðlasamskipta.

03

Útvistuð markaðsstjórnun

Manhattan gengur í stöðu markaðsstjóra eða markaðsdeildar fyrir fyrirtæki sem vilja faglega stjórn án innanhúss ráðningar, eða framlengingu á eigin markaðsdeild með utanaðkomandi reynslu.

04

CRM, markaðsgreiningar og fræðsla

Innleiðing viðskiptatengsla (CRM) til að byggja upp langtímasambönd, reglulegar markaðsgreiningar og þjónustukannanir, og markaðsfræðsla fyrir lið viðskiptavina sem vilja byggja upp eigin þekkingu.

Næst

Ertu með áskorun í huga?

Hefja verkefni →