Hoppa í aðalefniHoppa á efni
Vefapp · API-tengingarSamtenging · 2026

Vefurinn þinn talar við hin kerfin þín.

Inngangur

Vefur er sjaldan eitt eyland. Pantanir þurfa sendingar, viðskiptavinir þurfa staðfestingar í SMS, reikningar þurfa að enda í bókhaldinu. Við smíðum þessar tengingar inn í vefforritið þitt frá fyrsta degi, engar handvirkar millifærslur, engar viðbætur sem brotna við næstu uppfærslu, engin þriðju­aðila kerfi á milli sem geta rofnað án viðvörunar.

Tengingar sem við smíðum

01Sendingar

Íslandspóstur API

Sjálfvirk gerð sendinga, prentun á burðargjöld og rakning sem birtist viðskiptavininum í rauntíma. Pöntun er staðfest, sendinganúmer er búið til, og viðskiptavinurinn fær slóð til að fylgjast með pakka sínum, allt án handvirks eftirlits.

  • Sjálfvirk sendinga­kerfi fyrir netverslanir
  • Stöðu-uppfærslur úr pósturinn.is inn í stjórnborð
  • Útprentanleg burðargjöld beint úr pöntunarflæði
02Skilaboð

1819 SMS API

Sjálfvirkar SMS-sendingar fyrir staðfestingar, áminningar og tilkynningar. 1819.is er íslenska SMS-gáttin, afhending er hröð, kostnaður er stöðugur, og við þurfum ekki að styðjast við erlent SMS-fyrirtæki sem skilur ekki íslensk símanúmer.

  • Staðfesting á bókun eða pöntun
  • Áminningar á tímabókanir með afpöntunar­hlekk
  • Tveggja-þátta auðkenning fyrir innri kerfi
03Bókhald

Payday API

Sjálfvirk reikningagerð úr vefnum þínum beint í Payday, engar Excel-skrár, ekkert handvirkt innslag, engin gloppur á milli vinnu og innheimtu. Þegar pöntun er staðfest eða þjónustulota klárast verður reikningurinn til í Payday um leið, með réttu vsk-flokkana og réttu kennitölunni.

  • Sjálfvirk reikningagerð úr netverslun eða tímabókun
  • Áskriftarreikningar með endurnýjun á réttum dögum
  • Reikningar fyrir verkefnamiða í innri kerfum
04Opin tenging

Annað API að þínu vali

Höfum við ekki tengt það nú þegar? Þá tengjum við það núna. Greiðslukerfi (Teya, ), bókunarkerfi (Calendly, Cal.com), birgðakerfi eða þinn eigin gagnagrunnur, öll REST og GraphQL endapunktar eru meðhöndlaðir með SDK í kóðagrunninum og endurspeglast í stjórnborðinu þínu.

  • Teya fyrir kortagreiðslur
  • Microsoft Graph fyrir Office-skjöl og Outlook
  • Sérsmíðaðar tengingar við þína eigin bakenda

Dæmi

Vegferð

pörun, Kenni.is rafrænt skilríki, Realtime og Resend, fjórar -tengingar í einu kerfi.

Wiim Home

Sjálfvirk staðfestingar- og reikningaflæði fyrir netverslun; sendingar í gegnum Íslandspóst.

Datatech

Innra verkbeiðnakerfi sem talar við tölvupóst, SMS og innra bókhald, án handvirkrar afritunar á milli kerfa.

Tæknistakkur

  • REST API
  • GraphQL
  • Webhooks
  • type-safe SDK
  • Server actions
  • Server-Sent Events
  • Edge runtime

Algengar spurningar

01

Hvað kostar tenging?

Það fer eftir -i og hversu djúpa virkni þú þarft. Sumar tengingar (Íslandspóstur, 1819) eru komin í verkefnastakkinn okkar og taka örfáa daga. Sérsmíðaðar tengingar við flóknari bakenda taka lengri tíma. Sendu okkur [tilboðsbeiðni](/quote) og við sendum verðmat innan tveggja virkra daga.

02

Þarf ég sjálf/ur að halda utan um API-lyklana?

Nei. Við setjum lyklana í environment variables á , með aðgangsstýringu og snúningi. Þú sérð aldrei lykla í kóðagrunninum og þeir lenda aldrei í Git.

03

Hvað ef API-ið breytist?

Við skrifum tengingar með SDK þannig að breyting í -i kemur fram sem build-villa, ekki sem þögul bilun í framleiðslu. Auk þess vöktum við vefinn með heilsuskoðunum (health checks) og fáum tilkynningu áður en notendur taka eftir vandamálinu.

04

Get ég sjálf/ur stjórnað hvaða gögn fara út úr kerfinu?

Já. Allar útgáfur eru loggaðar í með aðgangsstýringu, og stjórnborðið sýnir nákvæmlega hvaða gögn voru send til hvers -s og hvenær. Persónuverndar­löggjöfin er ekki valfrjáls, við hönnum hana inn í kerfið frá grunni.

Næst

Tengjum það sem þú ert nú þegar að nota.

Sækja tilboð →